Furðuleg fréttamennska
Hér er ein skondnasta frétt sem ég hef séð lengi. Greinin fjallar sem sagt um það að greinarhöfundar tveir sem skrifuðu grein til stuðnings einum frambjóðendanna í kosningaslag Heimdalls hafi ekki kosningarrétt í þeim kosningum sem framundan eru. Ég er að velta því fyrir mér hvort það væri fréttnæmt ef einhver ákvæði að bjóða sig fram sem bæjarstjóri í Kópavogi en ég skrifaði grein í blaðið til að bera lof á þann mann. Ætli blöðin myndu fjalla um það líkt og frétt væri einungis vegna þess að ég bý í Reykjavík? Ég held ekki.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home