Bloggfrí
Einhver kann að hafa tekið eftir því að ég hef ekki bloggað í háa herrans tíð. Ástæðan er ekki leti né heldur sú að ég hafi ekkert haft að segja, heldur sú að ég hef verið tölvulaus undanfarið og hef ekki nennt að blogga án íslenskra stafa úr tölvuverinu hér í Princeton. En nú er ég loksins kominn með tölvu og get farið að blogga aftur. Vandinn er bara sá að þessa stundina hef ég engan tíma til þess. En ef ég er ekki búinn að hrekja frá þessar örfáu hræður sem kunna að hafa lesið bloggið mitt einhvern tímann með langri fjarveru minni, þá tilkynnist það hér með að ég er á lífi og mun blogga meira bráðlega.


1 Comments:
Þú losnar nú ekki svo glatt við mig, enda settiru þessa síðu sem upphafssíðu í ie hjá mér stuttu áður en þú fórst :)
By
Valla, at 12:15 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home