Kominn á gamlar slóðir
Jæja, þá er ég kominn aftur hingað. Já, ég varð eitthvað leiður á hinni síðunni og ákvað að breyta til. Æi, það er nú ósköp ágætt að breyta stundum til, ekki satt?
Hér er auðvitað allt bullið sem ég hef bloggað á hinum staðnum, ef einhver skyldi vilja lesa gamalt raus frá mér, en því miður fylgja athugasemdir frá lesendum ekki með í flutningunum. Þið verðið þá bara að líta við á hinum staðnum ef þið viljið lesa þau. En ykkur er auðvitað hjartanlega velkomið að gera athugasemdir hér í staðinn bæði við gamlar og nýjar færslur. Vitaskuld fagna ég þeim. Ég tek það nú bara fram af þeirri ástæðu einni að mér virðist sumir vera fremur feimnir við að tjá sig á annarra manna bloggsíðum þótt aðrir séu duglegir við það. En það er alger óþarfi að vera feiminn. Hvers vegna eru menn annars að bjóða upp á svona athugasemdakerfi?
Alltént blogga ég hérna núna en ekki lengur á hinum staðnum.

5 Comments:
Þetta er voðafínt bara en kommentakerfið er leiðinlegt...ég var annars bara búin að gleyma því að ég má skrifa á bloggið þitt :)
By
Nafnlaus, at 11:15 e.h.
Busted! Átt þú ekki að vera að gera eitthvað annað en að lesa blogg í kvöld? ;)
By
Geir, at 11:20 e.h.
Ég er sammála þér um að fólk sé óþarflega feimið við að kommenta á bloggsíður, í.þ.m. mína síðu.
Þessi síða er fín, mínimalískari en sú fyrri, og það þykir mér alltaf voða gott. Ahh(!) ég er ekki frá því að hér sé loftið aðeins ferskara. Umm(!) ahh(!) þessi síða andar vel. Slíkt andrými er ákjósanlegt fyrir alla andlega iðkun og er því vel að þú skulir kjósa slíkan stað fyrir komandi blogg þitt.
Flott Gott.
By
Arnþór L. Arnarson, at 3:43 e.h.
Hehe, þakka þér fyrir það Arnþór minn :)
By
Geir, at 8:54 f.h.
Jæja ætlaru ekki að blogga meira?
By
Valla, at 1:25 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home