Sapere Aude!

18.9.04

Svalur dagur í dag

Það er farið að kólna hér í Princeton (loksins). Ég þurfti að fara í peysu þegar ég fór út í dag! En ég er ekki að kvarta. Hitinn og aðallega rakinn hafa saman verið að gera út af við mig og ég er feginn að geta loksins hreyft litla fingur án þess að verða löðrandi sveittur.

Ég veit að Bandaríkjamenn munu aldrei ná að bera nafnið mitt fram almennilega svo ég kynni mig yfirleitt bara með bandarískum framburði á nafninu mínu. Sumir eru samt staðráðnir í að ná þessu og halda áfram og áfram að reyna. Ég nenni sjaldnast að standa í þessum eilífu leiðréttingum. Kannski ætti ég bara að segjast heita eitthvað annað af og til, t.d. Nancy! Það væri fyndið.

3 Comments:

  • Nancy...það er mjög svona...John Cleese-ish :)

    By Blogger Valla, at 1:14 f.h.  

  • Þú ættir bara að prufa að heita Arnþór Logi Arnarson! :D

    By Blogger Arnþór L. Arnarson, at 9:54 f.h.  

  • Nancy Þórarinsson! Ætlarðu svo að verða kennari í íslendingabyggðum í Manitoba?

    Gallagripur

    By Anonymous Nafnlaus, at 10:23 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home