Sapere Aude!

11.10.05

Símaspam

Það kannast allir við ruslpóst. Hann flæðir inn um bréfalúgurnar hjá okkur jafnt sem inn í tölvupósthólfin okkar. Það kannast líka allir við símasölufólk - pirrandi skrattar. En hvernig er hægt að gera heiminn betri með því að sameina þetta tvennt? Hér í Bandaríkjunum hafa menn nú fundið ráð við því. Nú eru menn farnir að hringja í fólk með aðstoð tölva, sem leysa símasölufólkið af hendi - og nú geta menn hringt í marga í einu.

Í dag var hringt í okkur Valgerði og á hinum enda línunnar var ekkert nema upptaka með einhverju cable upgrade tilboði. Það sem fólki dettur í hug til að hrella samborgara sína. Ég sá annars til sölu síma-zapper um daginn en hann "zappar" línuna hjá þessum símasölubjánum þegar þeir hringja. Það er víst eitthvert sérstakt "signal" á línunni hjá þessum símaspömmurum sem zapperinn nemur. Það er aldrei að vita nema ég festi kaup á svona tæki ef þetta símaspam heldur áfram. Zapp'em telemarketers!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home