Sapere Aude!

15.11.07

Völundarhúsið

Nú er illt í efni. Ekki alls fyrir löngu hætti önnur tveggja bókabúða hér í bænum rekstri og svo stuttu síðar hin, háskólabókabúðin, því ný bóksala átti að taka við því hlutverki að þjóna háskólasamfélaginu núna í haust. Hún var opnuð í gær. Og það er slæmt fyrir mig, því nú sé ég ekki fram á að eiga fyrir salti í grautinn. Vandinn er einfaldlega sá að bókabúðin er allt of góð, úrvalið of gott og freistingarnar of miklar. (Ef einhver skyldi skoða síðuna, þá gefur netverslunin af einhverjum ástæðum ekki rétta mynd af úrvalinu.) Það verður ekki minnst á það hér hvað ég er búinn að eyð... verja miklum fjármunum í bækur í vikunni (ég heimsótti líka útibúið við Columbia-háskóla um helgina en það er að vísu ekki sama verslunarkeðjan lengur nema að nafninu til). Ég er eins og Erasmus, sem sagðist kaupa bækur ef hann ætti pening en ef eitthvað væri afgangs keypti hann mat. Ef ég bara gæti keypt líka nokkra auka klukkutíma í hvern sólarhring! Svo vantar mig líka nokkra hillumetra.

2 Comments:

  • en sú mæða að eiga svona mann ;)

    By Blogger Valla, at 4:13 e.h.  

  • hehe, ég man eftir pokanum sem þú komst með úr búðinni um daginn og ég held þú hafir bara verið um korter í búðinni amk ekki lengi ;)

    By Blogger Ragna, at 9:16 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home