Spennufall
Ég er í spennufalli dauðans eftir vægast sagt erfiðan endi á önninni. Einhvern veginn gekk þetta nú samt upp en núna veit ég ekki hvað ég á við að gera. Byrjaði á að vaska upp í morgun (húsverkin hafa mætt afgangi undanfarið) en ég held að ég þurfi að taka mér nokkra daga til þess að slappa af áður en ég fer aftur að vinna. Ég er samt eiginlega búinn að lofa að skrifa nokkur svör fyrir Vísindavefinn og þarf að undirbúa kennslu fyrir Háskóla unga fólksins og þarf að finna tíma til þess líka.
Ég er farinn að hlakka til að koma heim, þótt ég verði ekki lengi.
Ég er farinn að hlakka til að koma heim, þótt ég verði ekki lengi.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home