Sapere Aude!

9.2.08

Repúblikanar án afsláttar

Mér finnst svolítið merkilegt að Íslendingar haldi að McCain sé hófsamur íhaldsmaður. Það er alveg rétt að hann hefur átt erfitt með að höfða til rétttrúnaðaríhaldsins sem kaus núverandi forseta en McCain er samt allt annað en hófsamur, hann er eins íhaldssamur og hægt er að vera. Og það sést á því hvernig hann hefur greitt atkvæði í þinginu og hvernig hann talar í kosningabaráttunni.

2 Comments:

  • Tja, er ekki Ann Coulter búin að lýsa því yfir að hann sé ekki nógu íhaldssamur og að hún telji HRC íhaldssamari?

    By Blogger Eyja, at 6:14 e.h.  

  • Já já, ég tek nú álíka mikið mark á Ann Coulter og þú, býst ég við. Það er kannski hægt að vera íhaldssamari en McCain; það er líka hægt að vera vitfirrtur. Ann Coulter er einmitt vitfirrt.

    Hillary Clinton getur ekki talist íhaldssamari en McCain sama hvað Ann Coulter segir. Það er svo annað mál að það er vel hægt að vera meira liberal en Clinton. En það er önnur umræða.

    By Blogger Geir, at 8:16 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home