Sapere Aude!

20.2.08

Ógeðsleg frétt

Ég sá frétt í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gær sem vakti hjá mér óhug og viðbjóð. Í fréttinni voru sýndar myndir af manni berja og sparka í höfuðið á nauti og öðrum manni í lyftara að keyra á naut sem lá á bakinu. Eftir að myndirnar birtust fyrst er búið að kalla inn 65 þúsund tonn af nautakjöti í Kaliforníu. Mig langar eiginlega til að verða grænmetisæta en ég er hræddur um að ég geti það bara ekki.

1 Comments:

  • Það vekur alltaf óhugnað þegar komið er fram við lifandi verur ( augljóslega meðvitaðar verur ) eins og dauða ómeðvitaða hluti.

    Mögulega er það skýring þeim, sem virðast vera sekir í þessum máli, til málsbóta að þeir eru orðnir svo samdauna þessari vinnu sinni að þeir eru hættir að skynja búfénaðinn sem lifandi verur, heldur meira sem hráefni sem er ekki til friðs.

    En þetta er aðeins möguleg skýring á 'ástandinu' en því ekki til afsökunar.

    By Blogger Arnþór L. Arnarson, at 10:55 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home