Tvífarar dagsins og fleira
Sigur íslenska handknattleiksliðsins á þýska liðinu í morgun (að bandarískum tíma) var hreint út sagt glæsilegur. Það gladdi mig mjög að sjá að íslensku strákarnir hafi ekki látið það fara of mikið í taugarnar á sér að Þjóðverjarnir hafi leikið eins og illa upp aldir ruddar, heldur héldu þeir bara sínu striki allan tímann með góðum árangri. Það er ekkert lið á þessum ólympíuleikum sem íslenska liðið á ekki að geta unnið (þeir eru jú efstir í sínum riðli eftir að hafa unnið heimsmeistarana!) og ég ætla þess vegna bara að vera svo djarfur að vonast eftir gullinu.
Gaman annars að segja frá því hvað ég hef verið sannspár hingað til; hef séð fyrir hvernig allar viðureignir hafa farið nema hjá Dönunum en ég bjóst við að þeir myndu vinna tvo fyrstu leikina sína en Evrópumeistararnir hafa svo bara ekkert náð sér á strik (gerðu jafntefli í öðrum leiknum og töpuðu hinum). Sjáum hvað setur.
Tvífarar dagsins eru þeir Heiner Brand, þjálfari þýska landsliðsins, og samlandi hans Friedrich Nietzsche.

2 Comments:
:D þessir tvífarar eru alveg brill!
By
beamia, at 5:49 f.h.
Ég held ég fari nú bara að safna í eitt svona. :D
By
Arnþór L. Arnarson, at 5:00 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home