Guðslög og landslög
Ef prestur lýsir því yfir að hann ætli ekki að fara að landslögum og virða tilkynningaskylduna sem lögð er á hann í barnaverndarlögum, ætti þá ekki að fjarlægja hann úr starfi? Viljum við hafa presta á launum hjá hinu opinbera sem ætla sér ekki að virða barnaverndarlög nema þegar það hentar? Hvað myndum við segja við lækni sem segði það sama?


1 Comments:
Það hlýtur að vera gerð krafa um það í starfs- og/eða siðareglum presta að farið sé að landslögum. Brjóti embættismaður gegn slíkum reglum er rétt að veita honum fyrst áminningu og þá í framhaldinu beita brottrekningu ef viðkomandi heldur uppteknum hætti.
By
beamia, at 7:36 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home