Sapere Aude!

26.9.04

Vitfirring

Það er engin leið að ég geti lesið allt sem ég á að lesa fyrir þriðjudaginn. Þetta er sturlun! Kannski næ ég að lesa 10 eða 15% af efninu. En ég geri ráð fyrir að það nenni fáir að lesa um námskeiðsáætlunina í námskeiðinu CLA502 Survey of Greek Literature. Ég nenni líka ekki að skrifa um hana. En það er svo sem ekki heldur spennandi að lesa um veðrið; ég hef samt leyfi og raunar skyldu til að lýsa aðstæðum hérna. Það bara fylgir því að blogga í útlöndum.

Ég er annars að spá í að skella mér í þýskupróf í lok október. Ef ég aðeins hefði tíma til að æfa mig pínulítið í þýskunni! Ég ráðlegg öllum í HÍ að nýta sér tungumálamiðstöðina til að halda við málunum sínum (þýsku, frönsku, ítölsku...). Þið hafið alveg tíma til þess að þið verðið þakklát fyrir það síðar.

1 Comments:

  • Já, takk fyrir hvatninguna, hún mun koma sér vel!:)

    By Blogger E, at 5:57 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home