Sapere Aude!

28.9.04

Syndaflóð?

Slík er rigningin hérna í Princeton, NJ, þessa stundina að manni dettur helst orðið "syndaflóð" í hug til þess að lýsa henni. Ég ætti kannski að hefja smíði á örk og safna dýrum í hana? Seifur skýjasafnari minnir líka á sig, lýstur niður eldingum með tilheyrandi hávaða þannig að herbergið allt nötrar engu síður en þegar Póseidon jarðskelfir hristir hólmann heima.

Því miður komst ég ekki nógu fljótt í skjól fyrir regninu því bækur og annað dót sem ég var með í bakpokanum blotnaði í gegn. Glænýjar bækur! Loðinn Lúsífer í heitasta helvíti (öðru nafni fiðraður Fosfóros - sama heimilisfang). Jæja, ekkert hægt að gera í því núna. Sem betur fer kom ekkert fyrir myndavélina mína!

2 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home