Sapere Aude!

5.10.04

Nöfn og gamlar hefðir

Íslendingar heita ekki lengur jafnskemmtilegum nöfnum og í gamla daga. Einu sinni hétu menn nöfnum eins og Brunda-Bjálfi. Hann var faðir Kveldúlfs. Væri nú ekki gaman að þýða slík nöfn fyrir útlendinga? Það held ég. "And what does that name mean?" "Well..."

Menn fá líka ekki lengur viðurnefni líkt og áður: Björn "Jórsalafari" Einarsson, Þrándur "mjögsiglandi" Bjarnason, Auðunn "rotinn" Þórólfsson, Þórólfur "smjör" Þorsteinsson og þar fram eftir götunum. Af hverju heitir enginn í dag til dæmis Halldór "ostur" Ásgrímsson, Þorsteinn "Englandsfari" Pálsson eða Jónas "sínöldrandi" Ögmundsson? Ef mönnum líkar ekki að tala um Skalla-Steingrím Sigfússon væri þó hægt að tala um Steingrím "skalla" Sigfússon.

Annars var hitinn víst settur á í húsinu í nótt. Ekki tók ég eftir því, enda svínslega kalt hérna á morgnana. Þarf að finna mér hlýrri föt! Ég er alltof illa klæddur, en Íslendingurinn ég á að vita betur; það er ekkert til sem heitir slæmt veður, aðeins illa klætt fólk. Ekki satt?

3 Comments:

  • Ég reyndar veit um einn sem er kallaður Xxxxxx "ostur" og svo er annar sem er alltaf kallaður Selfoss, en þetta eru hins vegar nöfn sem þeir vita ekki af og væru ekki beint sett í símaskránna :)

    By Blogger Valla, at 1:50 e.h.  

  • Af hverju heita allt í einu allir fullu nafni nema Eva Dögg Þorkelsdóttir, Kalli og Einar Örn?

    By Blogger Valla, at 3:56 e.h.  

  • Ful nöfn? ..bara í gamni. Já, ég átti bara eftir að klára þetta.

    By Blogger Geir, at 5:20 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home